Rekstur og málefni húsfélaga krefjast bæði mikillar vandvirkni og tíma, en oftar en ekki lendir þunginn á sömu einstaklingum ár eftir ár. Þar kemur Bókarinn minn inn í, en við getum aðstoðað við rekstur húsfélaga og getum þannig létt undir og tekið ábyrgð á málum sem annars lenda á íbúum fjöleignarhússins. Með okkar aðstoð er allri þjónustu húsfélagsins haldið til haga á einum stað og má þannig ná fram hagræðingu og lækka rekstrarkostnað.
Bókarinn minn getur tekið á móti stjórn húsfélaga og kynnt þjónustu sína. Við getum einnig séð um aðal- og húsfundi fyrir húsfélög sé þess óskað.
Húsfélög og – lög og reglur
Stjórn húsfélags er skylt að boða til aðalfundar fyrir lok aprílmánaðar ár hvert samkvæmt lögum um fjöleignarhús. Þá getur einnig verið nauðsynlegt að boða til húsfunda þess á milli séu t.a.m. stórar framkvæmdir framundan, ágreiningur milli íbúa eða hvað eina sem upp getur komið í samfélagi fjöleignarhúsa.
Með okkar aðstoð eru allar áhyggjur af undirbúningi slíkra funda, stjórnun þeirra og eftirfylgni úr sögunni og geta íbúar og stjórn húsfélagsins treyst því að framkvæmd fundanna og ákvarðanatökur á þeim séu samkvæmt lögum, reglum og venjum á sviði fjöleignarhúsa.
Samkvæmt lögum eru fjöleignarhús skilgreind sem hvert það hús sem skiptist í séreignir í eigu fleiri en eins aðila og í sameign sem bæði getur verið allra og sumra. Allir eigendur eru félagsmenn í húsfélagi viðkomandi fjöleignarhúss. Það að vera eigandi felur í sér réttindi og skyldur til þátttöku í húsfélagi, en ekki hægt að synja þátttöku eða segja sig úr húsfélagi nema með sölu á sínum eignarhluti.
Stjórn húsfélags skal kjósa á aðalfundi, en aðalfund skal halda einu sinni ár ári fyrir lok aprílmánaðar. Aðrir almennir fundir eru haldnir þegar þess er talið þörf. Stjórnin fer sameiginlega með málefni húsfélagsins milli funda og skal sjá um framkvæmd viðhalds og reksturs sameignar og önnur sameiginleg mál í samræmi við lög, samþykktir og ákvarðanir húsfunda. Stjórninni er einnig skylt að taka hvers kyns ákvarðanir er snúa að daglegum rekstri sameignar og halda utan um tekjur og gjöld húsfélagsins, innheimta hússjóðsgjöld og annan sameiginlegan kostnað. Þá skal stjórnin auk þess varðveita og ávaxta fjármuni húsfélagsins á tryggan hátt.
Stjórn húsfélags er heimilt að ráða framkvæmdastjóra sér til aðstoðar við daglegan rekstur sem og að semja við sjálfstæðan verktaka, t.d. húsfélagaþjónustu, til að annast tiltekin verkefni.