Hér á landi er tiltölulega einfalt að stofna fyrirtæki. Mikilvægt er að rekstarform henti starfseminni. Meðal þeirra eru einstaklingsfyrirtæki, hlutafélög og samvinnufélög.
Fyrirtæki stofnað
Stofnun fyrirtækis fylgir ábyrgð og áhætta. Meðal rekstrarforma eru:
- Einstaklingsfyrirtæki/firma
- Hlutafélög/opinber hlutafélög/einkahlutafélög
- Samvinnufélög
- Sameignarfélög
- Sjálfseignarstofnanir
Þegar kemur að því að stofna félag í atvinnurekstri er mikilvægt að velja sér rekstrarform við hæfi, meðal annars eftir umfangi rekstrar. Algengasta rekstrarformið á Íslandi eru einkahlutafélög. Gott er að ráðfæra sig við löggiltan endurskoðanda, bókara eða lögmann þegar kemur að því að velja rekstrarform, þar sem ábyrgð eiganda og skattlagning er ólík eftir rekstrarformi. Upplýsingar um mismunandi félagaform má sjá á heimasíðu menningar- og viðskiptaráðuneytisins.