Nýjustu fréttir

Rafræn málsmeðferð dánarbúsmála

Öll málsmeðferð í dánarbúsmálum er rafræn í dag

Sýslumenn hafa í rúmt ár unnið að því að öll málsmeðferð í dánarbúsmálum geti verið rafræn.

Þrjú stór skref hafa nú verið tekin sem létta undir með aðstandendum látinna.

  • Sýslumenn móttaka nú rafræn dánarvottorð.

Þetta leiðir til þess að þegar læknir gefur út rafrænt dánarvottorð fer það sjálfkrafa og á sama tíma til sýslumanns, embættis landlæknis og Þjóðskrár. Þá þurfa aðstandendur látins einstaklings ekki lengur að nálgast vottorðið á heilbrigðisstofnun og fara með það til sýslumanns. Hér sparast mörg spor fyrir aðstandendur og stofnanir hins opinbera. Sex heilbrigðisstofnanir hafa þegar innleitt ferlið og er von á fleirum innan tíðar. Þess má geta að sýslumenn taka einnig ennþá á móti dánarvottorðum á pappír.

Stuttu eftir að sýslumenn hafa móttekið rafrænt dánarvottorð fær tilgreindur aðstandandi í dánarvottorði, tilkynningu í stafrænt pósthólf sitt á Ísland.is um að hann þurfi að tilkynna um andlátið til sýslumanns. Það getur hann annað hvort gert með því að útfylla rafræna andlátstilkynningu eða að mæta á starfsstöð sýslumanns. Frekari leiðbeiningar um tilkynningu andláts er að finna á vef sýslumanna.

  • Skattframtöl sendast sjálfkrafa til sýslumanna.

Skattframtöl látins einstaklings berast nú sjálfkrafa beint inn í dánarbúsmál hjá sýslumanni sé gefið út rafrænt dánarvottorð. Erfingjar þurfa í þeim tilfellum ekki lengur að kalla eftir þessum gögnum frá Skattinum til þess að senda sýslumönnum.

Hvað er framundan?

  • Öll eyðublöð í dánarbúsmálum verði rafræn.
  • Upplýsingar um eignir og skuldir hins látna sendist sjálfkrafa beint í dánarbúsmál líkt og skattframtölin. Þá verða eignir og skuldir látins einstaklings að mestu forskráðar í þau eyðublöð sem erfingjar þurfa að útfylla vegna skipta á dánarbúi. Þá þurfa aðstandendur ekki lengur að fara á milli staða til að afla þessara upplýsinga nema aðeins í undantekningartilvikum.
  • Haghafar geti fengið upplýsingar um dánarbússkipti í gegnum vefviðmót, í stað þess að aðstandendur þurfi að ná í upplýsingar hjá sýslumönnum og fara með til tiltekinna haghafa.
  • Öll skjöl í dánarbúsmálum sem sýslumenn gefa út verði rafrænt innsigluð eða rafrænt undirrituð. Þá verður ekki lengur þörf á því að prenta skjölin út og skrifa undir þau og/eða stimpla.

Rafræn meðferð dánarbúsmála er samstarfsverkefni sýslumanna, Stafræns Íslands, embætti landlæknis, Þjóðskrár, Skattsins og ýmissa annarra haghafa. Nánar er hægt að lesa sér til um þessa nýjung inn á www.island.is

Tengdar fréttir

Framtalið verður aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins, www.skattur.is frá og með 1. mars nk. og ber öllum sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2023 að skila skattframtali og telja fram. Lokaskiladagur er 14. mars. Ef þú hefur spurningar eða lendir…

Greiða þarf kílómetragjald af akstri rafmagnsbíla, vetnisbíla og tengiltvinnbíla (bíla sem ganga bæði fyrir rafmagni og bensíni eða dísil). Gjaldið nær til fólksbifreiða og sendibifreiða. Greiðandi gjaldsins er eigandi bílsins. Undantekning er þegar eigandi er eigna- eða fjármögnunarleiga, til dæmis…

Að hefja rekstur – hvaða form rekstrar hentar Algengstu rekstrarformin í dag er Einstaklingsrekstur og Einkahlutafélag – ehf. En skoðum aðeins muninn á þessum félögum. Einstaklingsrekstur er ódýrasta og einfaldasta rekstrarformið, þá er reksturinn rekinn á kennitölu viðkomandi einstaklings og ber…

Skattfarmtal 2023, vegna tekjuársins 2022. Framtalið er aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins, www.skattur.is frá og með 1. mars nk. og ber öllum sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2022 að skila skattframtali og telja fram.  Lokaskiladagur er 14. mars. Bokarinn…

Umsókn um greiðsluáætlun. Að undanförnu hefur Skatturinn sent greiðsluáskorun til þeirra aðila sem hafa gjaldfallna skuld við ríkissjóð. Hún er birt í pósthólfi viðkomandi inn á vefsíðunni www.island.is. Þar er hægt að sjá nákvæma skuldastöðu og sjá einnig hvort að…

Sýslumenn hafa í rúmt ár unnið að því að öll málsmeðferð í dánarbúsmálum geti verið rafræn. Þrjú stór skref hafa nú verið tekin sem létta undir með aðstandendum látinna. Sýslumenn móttaka nú rafræn dánarvottorð. Þetta leiðir til þess að þegar…

Nú um áramót var lágmarksfjárhæð bifreiðagjalds hækkuð úr 7.540 kr. upp í 15.080 kr. fyrir hvert gjaldtímabil. Breytingin hefur mest áhrif á bifreiðagjald ökutækja með litla eða enga skráða koltvísýringslosun eins og sparneytna bíla og rafmagnsbifreiðar. Samhliða þessari hækkun lágmarksfjárhæðar…

Um áramót urðu breytingar á persónuafslætti og skattþrepamörkum. Breytingarnar hafa áhrif á tekjur ykkar. En við skulum fara stuttlega yfir þessar breytingar. Persónuafsláttur einstaklinga hækkar í 715.981 kr. á ári eða 59.665 á mánuði. Hækkunin nemur 5.749 kr. á mánuði.…

Endurgreiðsluhlutfall vegna vinnu við íbúðarhúsnæði lækkaði frá og með 1. september í 60%. En umsóknir með 100% endurgreiðslu mega berast skattinum eftir þann tíma.

Nú styttist í lokaskilafrest skattframtals lögaðila vegna rekstrarársins 2021, en álagning lögaðila fer fram 31. október nk. Framtal 2022 Skatturinn hefur vakið athygli á að lokaskiladagur lögaðila á skattframtali 2022 er 30. september nk. Ekki er tryggt að framtöl sem…

Bóka fund