Nú styttist í lokaskilafrest skattframtals lögaðila vegna rekstrarársins 2021, en álagning lögaðila fer fram 31. október nk.
Framtal 2022
Skatturinn hefur vakið athygli á að lokaskiladagur lögaðila á skattframtali 2022 er 30. september nk. Ekki er tryggt að framtöl sem berast eftir skilafrest fái skoðun fyrr en eftir að álagning fer fram 31. október nk. og eru þau sem eru í forsvari fyrir lögaðila hvött til að senda framtöl inn sem allra fyrst.
Hnappurinn
Stjórnendum örfélaga er sérstaklega bent á að kynna sér „Hnappinn“, en það er einföld og þægileg lausn fyrir smærri félög til að skila ársreikningi. Eftir að örfélag hefur skilað inn skattframtali er hægt að útbúa sjálfkrafa ársreikning sem byggður er á upplýsingum úr skattframtalinu.
Hnappurinn er einföld og þægileg lausn fyrir félög til að skila ársreikningi. Félög sem falla undir skilgreiningu laga um ársreikninga um örfélög og falla ekki undir 8. mgr. 3. gr. laganna, geta nýtt sér hann.
Örfélögum er heimilt að láta semja rekstraryfirlit og efnahagsyfirlit sem byggð eru á skattframtali þeirra í stað ársreiknings. Teljast þau gefa glögga mynd af afkomu félagsins.
Eftir að örfélag hefur skilað inn skattframtali er farið inn á þjónustusíðu Skattsins (www.skattur.is) og valið að láta Skattinn útbúa ársreikning félagsins. Við skil á „hnappsreikningi“ þurfa félög að staðfesta að þau uppfylli viðbótarskilyrði í lögum um ársreikninga, þ.m.t. að félagið beiti kostnaðarreikningsskilum og ekki sé um fjárfestingarfélag að ræða. Upplýsa þarf um eignarhald og stjórnendur og svara þarf spurningum um hvort til staðar séu skuldbindingar utan efnahagsreiknings, hvort eigendur eða stjórnendur hafi fengið lán eða aðra fyrirgreiðslu og hvort félagið hafi keypt, selt eða eigi eigin hluti.
RSK útbýr svo ársreikning byggðan að framangreindum upplýsingum og sér um að skila reikningnum til ársreikningaskrár til birtingar.
Gangi ykkur vel.